Ostafyllt svínalund með balsamikgljáa

700 g svínalund
125 g mascarpone ostur
125 g gráðostur
25  g  valhnetur, skornar í bita
salt og pipar
balsamik edik

Hreinsið og skerið svínalundina niður í 4 cm bita.
Berjið með kjöthamri þar til þær verða tæplega
1 cm þykkar og flatar. Hrærið saman mascarpone,
gráðosti og valhnetunum og smakkið til með salti
og pipar. Setjið eina matskeið af ostablöndu á enda
hverrar kjötsneiðar og rúllið sneiðinni upp utan um ostinn.
Best er að loka rúllunum þannig að þær rétt lokist og
krækja saman með tveimur tannstönglum.
Setjið rúllurnar í eldfast mót. Dreypið balsamik ediki yfir
þær og setjið í 225 gráða heitan ofn í 20 - 25 mín. eða
þar til kjötið er eldað í gegn. Gott er að hella örlitlum rjóma
yfir ostinn í fatinu (þann sem lekur út úr rúllunum og myndar
ljúffenga skán í botninn) og láta sósuna hitna vel áður en
kjötið er tekið úr ofninum og borið fram.