Önd og frönsk andalifur með kartöflu, gulrótakremi og
meðlæti
Önd og andalifur (hráefni):
4 andabringur
4 stk. andalifur í sneiðum
50 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Steikið andabringuna á pönnu upp úr smjöri. Setjið á bakka og klárið í ofni við
100°C. Steikið lifrina á pönnu stuttu áður en
matur er borinn fram. Passið að ofelda
Smjörsteikt kartafla (hráefni):
300 g bökunarkartöflur
10 ml ólífuolía
30 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Skerið kartöflu í teninga og steikið á heitri pönnu, bætið smjöri út í og klárið
í ofni.
Gulrótakrem (hráefni):
200 g gulrætur
2 skallottlaukar
1 hvítlauksgeiri
100 g rjómi
20 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Skerið gulrætur og lauk í smáa bita og setjið í pott með afgangi af hráefni.
Þegar gulræturnar eru orðnar mjúkar setjið í blandara
og maukið vel. Kryddið með salti og pipar.
Kirsuberjatómatar, aspas og brasserað fennel
1 box kirsuberjatómatar
1 box aspas
20 ml ólífuolía
2 stk. fennel
20 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Steikið aspas á pönnu og bætið tómötum á pönnuna í lokin og kryddið með salti og
pipar.
Steikið fennelið á pönnu upp úr smjöri og kryddið.
