Önd:
4 stk Magret andabringur LABEYRIE, fást í Nóatúni.
Peking duck sauce, fæst í Nóatúni
Skerið í andafituna á nokkrum stöðum og smyrjið peking duck sauce á
bringurnar með pensli og látið standa í 30 mín. Brúnið andabringurnar á pönnu
við vægan hita á báðum hliðum.
Steikið bringurnar í 140°C ofni í 15 mín. Takið þær úr ofninum og látið þær
standa í 5 mínútur áður en borið er á borð.
Pekanhnetur með kúrennum og döðlum
4 msk pekanhnetur
2 msk kúrennur
4 msk döðlur, skornar í sneiðar
100 ml peking duck sauce
100 ml vatn
2 msk fínt saxaður graslaukur
Ristið hnetur á pönnu, hellið sósu og vatni í pönnuna og látið suðuna koma upp. Setjið kúrennur og döðlur í sósuna og sjóðið hana í 10 mín. við vægan hita. Bætið vatni í sósuna ef hún er of þykk. Graslaukur er settur í rétt áður en borið er fram.
Hýðishrísgrjón með kóríander og chili-pipar
2 bolar grjón
5 bollar vatn
smávegis salt
1 bakki ferskur, fínt saxaður kóríander
1 rauður, fínt saxaður chili-pipar
1 rif fínt saxaður hvítlaukur
smávegis extra virgin ólífuolía
Sjóðið hýðishrísgrjónin í 45-50 mín. Steikið kóríander, chili-pipar og hvítlauk á pönnu í smávegis olíu. Látið hrísgrjónin á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur. Kryddið með pipar og salt eftir smekk.
Ristið á pönnu snjóbaunir og gulrætur
Hafa má aukalega peking duck sósu með öndinni