Önd að hætti Humarhússins
Önd með sætu kartöflukremi, gulrót, sultuðum perlulauk og gráfíkju- soðsósu
Hráefni:
Andarbringa
Gulrætur
Perlulaukur
Aðferð:
Andarbringa er steikt á pönnu við lágan hita á fituhliðinni. Af og til er
fitunni sem kemur af bringunni hellt af pönnunni og er notuð til að elda
andalærin. Bringunni er svo snúið við og elduð í mjög skamman tíma á þeirri
hlið. Öndin er svo fullelduð í ofni. Gulræturnar eru flysjaðar og steiktar upp
úr smjöri. Salt og pipar í lokin.
Perlulaukurinn er bakaður í hýðinu í ofni við 150°C, flysjaður og lagður í
ediklög.
Ediklögur (hráefni):
Gott hvítvínsedik
Sykur
Rósmarín
Einiber
Aðferð:
Ediki og sykri er blandað saman í potti í hlutföllunum 50/50 með rósmarín og
einiberjum og soðið þar til allur sykurinn er leystur upp.
Sætt kartöflukrem (hráefni):
Sætar kartöflur
Appelsínusafi og appelsínubörkur
Salt og pipar
Aðferð:
Kartöflurnar eru bakaðar í ofni í hýðinu. Skafið svo innan úr kartöflunni og
setjið í matvinnsluvél og maukið vel. Kryddið með appelsínusafa, berki, salti og
pipar.
Gráfíkjusoðgljái (hráefni):
Shallotlaukur
Hvítlaukur
Rósmarín
Einiber
Kardimommur
Gráfíkjur
Hrásykur
Balsamik
Rauðvín
Nautasoð
Aðferð:
Laukurinn, hvítlaukurinn, rósmarín, einiber, kardimommur og gráfíkjur er svitað
í potti. Hrásykri bætt út á og karamelliserað. Balsamediki (balsamiki) er bætt á
og soðið niður í karamellu. Rauðvíni er bætt út í og soðið niður. Nú er
nautasoði bætt út í og sósan sigtuð og soðin niður í mátulega þykkt. Sósan er
smökkuð til og krydduð með salti og pipar.
