Ofnsteiktur lambahryggur með jógúrtsósu
Skemmtilegt afbrigði af sunnudagshryggnum hennar mömmu.
Vakin er athygli á frjálsu vali á grænmeti og þar er um að gera að vera svolítið
hugmyndarík(ur).

2.2 kg lambahryggur
tímían
salt
pipar
Sósa
100 g grænmeti að eigin vali
½ dl rjómi
2 stk jógúrt í dós, hreint án ávaxta
kryddsalt, aromat frá McCormick
smjör, hvítlauks
Matreiðsla
Höggvið lambahrygginn meðfram hryggsúlunni endilangri báðum megin og takið hana
burt. Fjarlægið fitu og sinar. Kryddið hrygginn og steikið hann í ofni við 175°C
í 15 mínútur. Skerið hrygginn í fallegar sneiðar.
Sósa
Steikið grænmeti í hvítlaukssmjöri stutta stund og færið það síðan upp. Bætið
við rjóma og síðan jógúrt, en athugið að sósan má ekki sjóða. Kryddið sósuna með
kryddsalti.
Framreiðsla
Berið fram með sósunni og grænmetinu.