Nautakjöt í rjómasveppasósu (Fyrir tvo)

250 g nautakjöt sem skorið hefur verið í strimla
½ tsk. Salt
½ tsk. Pipar
1 msk. smjör til steikingar
½ laukur, skorinn  sneiðar
8 ferskir sveppir
2 dl rjómi
1 dl vatn
1. Steikið lauk og sveppi í smjöri á pönnu. Kryddið kjötið með salti og pipar og skellið út á.
2. Steikið kjötið í þrjár mínútur.
3. Bætið rjóma og vatni á pönnuna og látið allt malla í 10 mínútur.
4. Bragðbætið með salti og pipar eftir þörfum en einnig er gott að setja krafttening út í.
5. Berið fram með soðnu m kartöflum eða hrísgrjónum.