Nautahryggvöðvi með koníakssósu
af ms vefnum
7 sneiðar nautahryggvöðvi (2 sm þykkar)
2 msk þurrkaður grænn pipar
25 g smjör
sósa
3 msk koníak
1 dl vatn
1 tsk kjötkraftur
2 dl rjómi
1 dós sýrður rjómi (36%)
salt
Þerrið kjötsneiðarnar og veltið upp úr muldum pipar (má nota 1½ msk ferskan
(saxaðan) í staðinn fyrir 2 msk þurrkaðan), látið bíða í 1 klst. Steikið
kjötsneiðarnar í smjöri á vel heitri pönnu í 3-4 mín. hvora hlið. Stráið örlitlu
salti yfir. Hellið koníaki yfir og takið síðan kjötið af pönnunni. Bætið vatni,
kjötkrafti, rjóma og sýrðum rjóma út í. Látið krauma við vægan hita í 5-10 mín.
eða þar til sósan hefur þykknað. Kryddið og litið með sósulit.
borið fram með léttsteiktu grænmeti og bökuðum eða soðnum kartöflum.
