Nautafile í Teriyaki-sósu að hætti Rikku

fyrir 4

 

2 dl Teriyaki sósa

1 dl Soya sósa

4 hvítlauksrif, kreist

5 cm engifer, rifið

500 g nautafilé

200 g brokkoli

1 dós mini maís

1/2 dós baunaspírur

2 msk sesamfræ

2 msk vorlaukur

 

Blandið saman Teriyaki- og Sojasósu ásamt hvítlauk og engifer. Bætið nautakjötinu, brokkoli, maís og baunaspírum út í og látið standa í 5-10 mínútur. Sigtið marineringuna frá kjötinu og grænmetinu og geymið. Steikið kjötið og grænmetið á pönnu í 5 mínútur og hellið marineringunni yfir og látið malla í 5 mínútur. Stráið vorlauk og sesamfræjum yfir og berið fram með hrísgrjónum.