Léttsteiktur lambahryggur með kryddjurtasósu
Þessi einstaka kryddjurtasósa gefur réttinum kraft og skerpu. Athugið að þessa
sósu má einnig nota með öðrum hlutum lambsins.

3 dl kjötsoð
¾ dl hvítvín, þurrt
3 msk ólífuolía
20 g smjör
1 stk laukur
1 stk lambahryggur
pipar
bergminta (origon) McCormick
tímían, McCormick
steinselja, McCormick
fáfnisgras, (estragon) McCormick
salt
kerfill, McCormick
basilíka, McCormick
rósmarín, McCormick
lárviðarlauf, McCormick
salvía, McCormick
Undirbúningur
Fjarlægið hryggjarsúluna og hreinsið fituna af rifjunum. Saxið laukinn smátt.
Matreiðsla
Brúnið hrygginn á vel heitri pönnu og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Steikið hann síðan í 180° heitum ofni í 8 mínútur, slökkvið þá á ofninum og
látið hrygginn bíða í 3-4 mínútur.
Sósa
Hitið olíuna á pönnu og mýkið í henni laukinn. Bætið við kryddi og víni og
sjóðið þar til þetta þykknar. Hellið soðinu út í og sjóðið þar til um þriðjungur
er eftir (ef notað er vatn og kjötkraftur þarf að þykkja sósuna lítillega með
maísenamjöli í köldu vatni). Takið pönnuna af hellunni og bætið smjörinu smátt
og smátt út í sósuna. Hrærið vel. Athugið að eftir það má sósan ekki sjóða.
Hollráð
Gott er að bera hrygginn fram með olíusoðnum hvítlauk og nýju grænmeti. Sósan er
ljúffeng með hvaða hluta af lambinu sem er, t.d. læri, kótilettum eða
heilsteiktum hrygg.