Léttreyktur lambahryggur með hnetu- og döðlufyllingu
1 léttreyktur lambahryggur
½ poki valhnetur, pekan eða kasjúhnetur
15 stk. döðlur
2-3 sólþurrkaðir tómatar (þurrkið ef þeir eru í olíu)
ca. 2 dl rifinn gouda-ostur
Maukið hnetur, döðlur og tómata gróft í matvinnsluvél og blandið osti við. Takið
lundir innan úr hrygg og hreinsið himnur vel áður en þið setjið maukið inn í
hann. Leggið lundir ofan á mauk og lokið hrygg með því að sauma fyrir með garni.
(Hryggur með breiðum slögum hentar vel.) Setjið hrygg í pott, hellið vatni í
hann og setjið í ofn. Steikið í 45 mínútur á hvert kíló við um 180° C. Berið
fram með grænmeti og ávöxtum.
Kartöfluréttur með Camembert-sósu
4 bökunarkartöflur, afhýddar og saxaðar í litla bita
1 sæt kartafla, afhýdd og saöxuð í litla bita
¼ fryst Wok-grænmeti - eða annað ferskt grænmeti
1 Camembert-ostur
Bakið bökunarkartöflur, bætið sætum kartöflum við og loks Wok-grænmeti, því
þetta þarf mislangan bökunartíma. Bræðið ost í potti og gætið að ekki sjóði upp
úr. Hellið yfir grænmeti og bakið í smástund. Berið fram með hrygg.