Leirpottslamb Friðriks V
Íslenskt hvannarlamb með bankabyggi
fyrir 6

800-1000 g súpukjöt með beini eða beinlaust filet eða læri, helst Hvannarlamb frá Fagradal
2 laukar
1 íslensk gulrófa
4-5 íslenskar gulrætur
2 meðalstór íslensk hnúðkál
3 lárviðarlauf
1 bolli bankabygg frá Eymundi í Vallanesi, látið liggja í köldu vatni í 2 klukkustundir
1 væn rósmaríngrein
3 hvítlauksrif,
100 g íslenskt smjör
Salt og pipar
½ lítri lambasoð
Fáfnisgras

Bleytið pottinn undir rennandi vatni. Grænmetið flysjað og brytjað gróft, hvítlaukurinn skorinn í þunnar sneiðar. Hellið vatninu af bankabygginu og blandið kjöti og grænmeti vel saman við, kryddið með salti og pipar, lárviðarlaufi og þyrnunum af rósmarínstilknum. Setjið í leirpottinn, hellið lambasoðinu yfir og setjið smjörið á toppinn, lokið og bakið í 160°C heitum ofni í 1½ klukkutíma. Hrærið reglulega í á meðan og stráið svo fáfnisgraslaufunum yfir og lokið áður en borið er fram

Mynd "Leirpottslamb"