Lambalæri á ítalskan máta
Fyrir 6

Lambalæri á beini
8 stk. hvítlauksrif
3 greinar rósmarin
3 greinar timian
3 dl extra virgin ólífuolía
Sjávarsalt og nýmulinn svartur
pipar
Grófskerið hvítlauk og kryddjurtir og blandið saman við olíu. Setjið lambið í form og hellið blöndunni yfir og makið vel upp úr. Látið liggja yfir nótt svo að sem mest af kryddjurtabragði og hvítlauk smitist í kjötið. Stillið ofn á 180 gráður og eldið lamb í um það bil eina klukkustund. Mikilvægt að láta kjötið standa í á bilinu tíu til fimmtán mínútur áður en skorið er svo vökvi haldist í kjötinu.

Bakað nýtt, íslenskt kartöflusmælki

800 g nýtt, íslenskt kartöflusmælki
2 dl extra virgin ólífuolía
Sjávarsalt og nýmulinn svartur pipar
(gott er að setja smá balsamikedik, hafi fólk smekk fyrir því)
Setjið kartöflur á bökunarplötu, setjið olíu og krydd yfir og makið vel. Bakið við 180 gráður í á bilinu 25 til 35 mínútur.

Soðkjarni
2 stk. shallotlaukar
1 rif hvítlaukur
1 grein timian
2 dl rauðvín
1,5 lítrar lambasoð (hægt að kaupa frá Úrvals í búðum)
Olía, salt og pipar
Skerið shallotlauk og hvítlauk og svitið í potti. Hellið rauðvíni yfir og sjóðið niður. Hellið því næst soði yfir og sjóðið niður um 1/3. Má þykkja aðeins með jafnara. Kryddið til með salti og pipar. Sigtið sósu fyrir notkun.