Lambahryggur með Ratatoulegrænmeti
1 lambahryggur
100 ml rauðvín
50 ml hunang
2 stk. anisstjörnur
2 greinar rósmarín
3 geirar hvítlaukur (skrældur)
15 ml olía, salt og pipar
Aðferð: Skerið í fituna og kryddið hrygginn með salti og pipar.
Leggið hrygginn í ofnskúffu. Bakið í ofni á 220°C í 15mín. Sjóðið upp á
rauðvíni, hunangi og anisstjörnum.
Takið hrygginn út eftir 15 mín. og setjið rauðvínsgljáann á. Klárið að elda
hrygginn á 110°C í 12 mín. eða þar til kjarnhiti hefur náð 60°C. Skerið hrygginn
af beininu og veltið upp úr olíu, rósmarín og hvítlauk.
Ratatoule
1 kúrbítur
2 rauðlaukar
1 eggaldin
1 rauð paprika
50 ml tómatmauk
1 hvítlauksrif, fínt saxað
hunang, salt og pipar
Aðferð: Grænmetið er skorið í litla bita og steikt á pönnu.
Öllu blandað saman og kryddað til.
