Lambahryggsrúlla vafin í parmaskinku með framandi lambaöxl
Margir hafa lent í því að lambalundirnar, sem eru einn besti vöðvinn á hryggnum,
vilja verða ofeldaðar og þurrar þegar hryggurinn er tilbúinn. Séu þær hins vegar
teknar af og notaðar til fyllingar ásamt apríkósum, furuhnetum og cuminkryddi,
þá er allur hryggurinn tilbúinn á sama tíma og kjötið safaríkt eftir því. En
hægt er að úrbeina hrygginn og vefja hann inn í parmaskinku eins og hér er gert
eða skera meðfram beinunum og stinga fyllingunni undir hryggvöðvann og gera
hrygginn heilan, þá þarf meiri eldunartíma en hér. En ef mikið á að leggja í
réttinn er hægt að hægelda lambaöxl sem gerir réttinn nýtískulegan og framandi
(en það er ekki nauðsynlegt).
Hráefni:
1 stk. lambahryggur
nokkrar sneiðar, þunnt skorin parmaskinka
10 stk. apríkósur
50 g furuhnetur
3 g cumin
salt og pipar
Aðferð:
Skerið meðfram beininu ofan frá, fjarlægið filet ofan frá og lundirnar neðan af
hryggnum, fyllið með apríkósum, og furuhnetum. Vefjið í parmaskinku, kryddið með
salti, pipar og cumin-kryddi. Bakið í ofni við 220°C í 6 mínútur og lækkið svo
niður í 150°C í um 3-5 mínútur (getur verið breytilegt eftir ofnum) eða þar til
kjarnhiti nær 62°C. Hægelduð lambaöxl
Hráefni:
1 stk. fremsti hlutinn af framparti
blandaður grænmetisafskurður
salt og pipar
Aðferð:
Lambaöxlin er vafin þétt inn í plastfilmu með grænmetisafskurði ásamt kryddi að
eigin vali og elduð í potti í minnst 6-8 tíma. Allt kjöt er rifið af beinunum og
kryddað með salti og pipar og Nam Prikapríkósudressingu.
Nam Prik-apríkósudressing
Þessi dressing er tilvalin á eldað kjöt því vatnið fer inn í kjötið og skilur
eftir ferskt bragð og er því alveg fitulaus.
Hráefni:
50 ml sykursíróp (50 ml vatn og 30 g sykur) safi og börkur af 1 límónu 1 rif,
fínt saxaður hvítlaukur 4 stk. apríkósur ½ kjarnhreinsaður chili-pipar salt og
pipar ferskt kóríander (má sleppa) nokkrar furuhnetur
Aðferð:
Rífið hvítlauk og börkinn af límónu með fínu rifjárni. Blandið í sykursírópið
ásamt límónusafa og fínt söxuðum kjarnhreinsuðum chilipipar, furuhnetum og
apríkósum. Framreiðið með lambaöxlinni.
Meðlæti
Rjómasoðið sumargrænmeti eins og aspas, spínat og sveppir. Sósa og kartöflur að
eigin vali.
