Lambafríkassé

Lambafríkassé er í raun frekar ömmumatur en mömmumatur. Rétturinn var oft á borðum hér áður fyrr og þótti afar góður.

1 kg lambakjöt með beini
6 dl vatn
1 1/2 tsk salt
2 gulrætur
blómkálshaus
1 blaðlaukur
6 dl kraftur frá kjötinu
4 msk hveiti hrært með vatni
3 msk ferskt dill
2 1/2 msk sýrður rjómi
1 msk sítrónusafi


Látið vatnið sjóða og setjið kjötbitana út í. Látið suðuna koma aftur upp þegar kjötið er komið í pottinn og fleytið froðunni ofan af. Saltið og látið malla í um það bil 45 mínútur.
Skolið grænmetið og skerið það í bita. Setjið það síðan út í pottinn og látið það sjóða í 10 mínútur eða þangað til það er orðið mjúkt.
Búið til sósu með krafti frá kjötinu og grænmetinu. Sjóðið upp og bætið hveitijafningnum út í. Látið sósuna malla í 10 mínútur. Bætið dilli, sýrðum rjóma, sítrónusafa og salti og pipar við í loikinn.
Leggið kjöt og grænmeti á disk með hrísgrjónum og ausið sósu yfir.
Einnig má blandi bæði kjöti og grænmeti saman viið sósuna og setja á stórt fat.