Lamb umvafið kartöflum

Hráefni:
800 g lambahryggvöðvi (200 g á mann)
kartöflupestó
200 g kartöflur (soðnar og stappaðar)
2 dl mjólk
2 dl brauðrasp

Aðferð:
Gott er að vera búinn að maka pestói á lambavöðvann og láta bíða í allt að sólahring. Skafið svo pestóið af og geymið, brúnið kjötið á pönnu og setjið í eldfast mót, setjið pestóið aftur ofan á kjötið. Takið slatta af kartöflupestóinu og bætið kartöflunum, mjólkinni og brauðraspinu saman við, piprið
örlítið. Búið til með skeið litlar dúllur í eldfasta mótið hjá kjötinu, setjið þetta í ofn í um 20 mínútur við 150 gráðu hita, má hækka hitann síðustu mínúturnar til að fá smá brúnan lit á kartöflurnar og pestóið. Þetta er svo borið fram með fersku salati að vild, og smávegis af sósunni, en kartöflupestóið gefur kjötinu svo gott bragð að það þarf ekki mikla sósu.