Lamb með Guinness-bjór
1 stk. lambahryggur, úrbeinaður og hreinsaður
1 stk. skalottlaukur, fínt skorinn
1/2 engiferrót, fínt skorin
1 stk. hvítlauksgeiri, fínt saxaður
400 ml Guinness-bjór
300 ml soð (nautakraftur góður)
50 g púðursykur
olía
salt
pipar
Útbúið gljáann með því að mýkja laukinn og engiferrótina í olíu í potti. Bætið
bjórnum út í og sjóðið niður. Þá er soðinu bætt út í og aftur soðið niður.
Smakkið til með púðursykri og salti. Takið kjötið, piprið og saltið og steikið á
pönnu á hvorri hlið í tvær mínútur. Hjúpið vöðvann með bjórgljáanum og steikið í
20 sek. á hvorri hlið. Setjið kjötið á fat og í ofn 180° C í 4 mín.
Blómkálsmauk
1 blómkálshaus
400 ml vatn
150 ml rjómi
salt
sítrónusafi
Blómkálið er skorið í litla bita og soðið í vatninu þar til það er mjúkt
viðkomu. Takið það þá upp úr vatninu og maukið í matvinnsluvél. Sjóðið rjómann
niður um helming og bætið út í blómkálið. Smakkað til með salti og sítrónusafa.
Íslenskt rótargrænmeti
1 stk. gulrót
1 stk. sellerírót
1/2 stk. rófa
1/2 stk. hnúðkál
vatn,
smjör
salt og sykur
Skrælið grænmetið, skerið það niður í bita eftir smekk og sjóðið í saltvatni í
fjórar til sex mínútur. Sigtið og setjið á heita pönnu ásamt 70 ml af vatni og
og 40 g af smjöri. Saltið og sykrið eftir smekk og sjóðið niður þar til
grænmetið er gljáð.
Þráinn Vigfússon landsliðskokkur