Lamb í leirpotti
Lambakjöt fyrir fjóra - skorið í bita
2 msk. olía og út í hana skal hræra
salti og pipar og eftirfarandi kryddi:
1 tsk. saffran
2 tsk. engifer
1 tsk. kúmen
1 tsk. paprikukrydd
Nokkur hvítlauksrif
2 stórir laukar
8 gulrætur
3 stórar bökunarkartöflur
Ferskt kóríander
Grænmetissoð
Aðferð:
Fyrst skal velta kjötbitunum upp úr kryddolíublöndunni ásamt lauk og hvítlauk og
blanda vel. Setjið síðan í góðan leirpott. Hellið dálitlu grænmetissoði yfir og
síðan gulrótum og kartöflum. Strá svo ferskum kóríander yfir allt saman, setja
lokið á og leirpottinn inn í 200 gráða heitan ofn í klukkutíma. Má bæta við
grænmetissoði og kryddi eftir smekk.