Kúbverskur svínahnakki

800 g svínahnakkasneiðar
200 ml ananassafi
2 msk epla- eða vínedik
3-4 hvítlauksgeirar
1 tsk sykur
1 tsk kummin, steytt
1/2 tsk oregano
chilipipar eftir smekk
nýmalaður pipar
salt
2 msk olía
1 laukur, gjarna rauðlaukur
4-5 tómatar

Svínahnakkasneiðarnar skornar í 2-3 bita hver og bitarnir lagðir á disk.
Ananassafi, edik, hvítlaukur, sykur, kummin, oregano, chilipipar og pipar
hrært saman í skál og hellt yfir kjötið. Látið liggja í hálftíma við
stofuhita eða allt að 4 klst í ísskáp; snúið einu sinni eða tvisvar. Ofninn
hitaður í 230 gráður. Kjötið tekið úr leginum (en hann geymdur) og þerrað
lauslega með eldhúspappír. Olíunni hellt í eldfast fat og hún hituð í
ofninum. Kjötið saltað, sett í fatið og stungið í ofninn í um 10 mínútur,
eða þar til það er farið að taka lit. Á meðan er laukurinn skorinn í stóra
bita og tómatarnir í fjórðunga. Fatið tekið út, lauk og tómötum dreift á
milli kjötbitanna og ofan á, og svo er kryddleginum hellt yfir og saltað
ögn. Sett aftur í ofninn, hitinn lækkaður í 200 gráður, og steikt áfram í
35-45 mínútur, eða þar til kjötið er vel meyrt og mestallur lögurinn gufaður
upp (fylgjast þarf með í lokin og bæta við smávatni ef þarf). Borið fram
t.d. með ofnsteiktum kartöflum og grænu salati, eða þá með hrísgrjónum og
nýrnabaunum.