Kúbversk svínasteik

2,5-3 kg svínabógur með beini
6 hvítlauksgeirar
1 rautt chilialdin (stórt, milt), fræhreinsað
1 appelsína
1/2 sítróna
1 msk salt
1 tsk nýmalaður pipar
1 tsk oregano
1/2 tsk kummin, steytt

Steikin þerruð með eldhúspappír og hún síðan lögð með pöruna niður á grind
sem höfð er yfir steikarfati eða ofnskúffu. Hvítlaukur og chili saxað mjög
smátt (gott að nota blandara eða matvinnsluvél. Börkurinn rifinn af
appelsínunni og sítrónunni og blandað saman við ásamt salti, pipar, oregano,
kummini og nægilegum appelsínu- og sítrónusafa til að úr verði fremur þykkt
mauk. Smurt á alla skurðfleti á steikinni og látið standa við stofuhita í
1-2 klst. Ofninn hitaður í 170 gráður. Kjötið sett í ofninn og steikt í
hálftíma en þá er því snúið, þannig að paran snúi upp, og afganginum af
appelsínu- og sítrónusafanum hellt í ofnskúffuna ásamt dálitlu vatni. Steikt
áfram í 2-2 1/2 klst, eða þar til kjötið er hæfilega steikt; ef paran verður
of dökk má breiða álpappír yfir en ef hún verður ekki stökk má kveikja á
grillinu seinustu 10-15 mínúturnar. Vatni bætt í steikarfatið eftir þörfum.
Steikin er svo tekin út, sett á fat og látin standa í a.m.k. 15 mínútur áður
en hún er skorin.