Kryddjurta-hvítlauksmarineruð nautalund með grilluðum
smámaís og bakaðri kartöflu með spínatsmjöri
fyrir fjóra
800 g nautalund
1/4 búnt garðablóðberg
1/4 búnt basil
1/4 búnt rósmarin
1/4 búnt kóríander
2 hvítlauksrif
4 msk ólífuolía
salt og pipar
Merjið kryddjurtirnar ásamt hvítlauknum og ólífuolíunni í morteli. Marinerið
kjötið í 2 klst. kryddið með salti og pipar.
Heilsteikið lundina í um 6 mínútur á hvorri hlið og látið kjötið hvíla í um 10
mínútur.
1 box smámaís
4 msk brætt smjör
salt og pipar
Veltið maísnum upp úr smjörinu, kryddið hann með salti og pipar. Grillið maísinn
í um 2 mínútur á hvorri hlið.
4 stk bökunarkartöflur
100 g smjör
2 lúkur spínat
1 rif hvítlaukur
salt og pipar
Bakið kartöflurnar. Setjið smjörið í matvinnsluvél ásamt spínatinu, hvítlauknum
og kryddið með salti og pipar.