Kjötkaka með beikoni og ólífum
600 g kjöthakk, t.d. svínahakk
2-3 brauðsneiðar, dagsgamlar
1 laukur, skorinn í bita
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir
2 msk dijonsinnep
1 msk tómatþykkni (má sleppa)
1 tsk próvensölsk eða ítölsk kryddjurtablanda
1/2 tsk paprikuduft
nýmalaður pipar
salt
1 egg
200 g beikon í sneiðum
8-16 ólífur, steinlausar, gjarna fylltar
Ofninn hitaður í 200 gráður og hakkið sett í
skál. Brauðið rifið niður og
sett í blandara eða matvinnsluvél ásamt lauk, hvítlauk, sinnepi, tómatþykkni
og kryddi og vélin látin ganga þar til allt er komið í mauk. Egginu hrært
saman við (ef blandan er þykk mætti e.t.v. bæta við öðru eggi). Maukinu
hellt yfir hakkið í skálinni og hrært vel saman (best að nota hendurnar).
Helmingnum af beikonsneiðunum raðað á botninn á eldföstu formi.
Hakkblöndunni jafnað yfir, yfirborðið sléttað og ólífum stungið ofan í
hakkið. Afganginum af beikonsneiðunum er svo raðað þar ofan á. Sett í ofninn
og bakað í um hálftíma, eða þar til hakkið er steikt í gegn og beikonið
hefur tekið góðan lit.
Með þessu má til dæmis hafa kartöflur í ýmsum myndum en ég var með
kartöflukrókettur sem ég keypti frosnar, lét þiðna og steikti í olíu við
góðan hita þar til þær voru dökkgullinbrúnar og stökkar. Ef ég hefði nennt
hefði ég kannski gert góða kryddjurtabætta tómatsósu með þessu - hún hefði
átt vel við. En kjötkakan stóð alveg fyrir sínu.