Kjötbollur með kryddjurtum
2-3 brauðsneiðar
1 laukur, saxaður
1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir
1/2 tsk timjan, þurrkað
1/2 tsk oregano, þurrkað
1 egg
nýmalaður pipar
salt
500 g nauta- og/eða svínahakk, meðalfeitt
2 msk olía
300 ml soð eða vatn
1 tsk grænmetis- eða kjötkraftur
1 tsk sojasósa (má sleppa)
sósujafnari
Niðurrifið brauð, saxaðaður laukur og
hvítlaukur sett í matvinnsluvél og hún
látin ganga þar til allt er orðið að mylsnu. Þá er kryddjurtum, eggi, pipar
og salti bætt út í. Hakkið sett í skál, brauðmylsnublöndunni hellt yfir og
allt hnoðað vel saman með höndunum og síðan mótað í bollur. Olían hituð á
pönnu og bollurnar brúnaðar á öllum hliðum við meðalhita. Síðan er soðnu
hellt á pönnuna, soðkrafti og sojasósu hrært saman við ásamt pipar og salti,
og látið malla undir loki þar til bollurnar eru soðnar í gegn. Þá er sósan
þykkt með sósujafnara (einnig má bragðbæta hana með svolitlu tómatþykkni ef
vill, eða jafnvel ögn af pestósósu ef þannig stendur á).