Kjötbollur með hvítkálsjafningi


200 g skorið hvítkál
125 g sýrður rjómi 5-10%
rifið múskat
salt og pipar
örlítið sætuefni
jafnvel smá steinselja ef vill

170 g hakkað fitulaust svínakjöt
25 g rifinn laukur
3 tsk haframjöl
1 dl fjörmjólk
tímian
salt og pipar

Skerið hvítkál og setjið í sjóðandi vant í nokkrar mínútur, hellið vatninu frá og blandið sýrða rjómanum við heitt kálið.
Bragðbætið með múskati, salti og pipar og jafnvel smá sætuefni. Stráið steinselju yfir.
Útbúið fars úr kjöti, lauk og haframjöli, mjólk og kryddi. Útbúið litlar bollur og steikið á pönnu þar til þær eru steiktar í gegn.
Berið bollurnar fram ásamt kvítkálinu.