KJÖT
Í GUINNESS
Þessi
kjötkássa er með afar írskum formerkjum, en í hana er meðal annars notaður
Guinness-bjór.
1 kíló nautakjöt
3 msk olía
2 msk hveiti
Salt og nýmulinn svartur pipar
Klípa af cayenne pipar
2 stórir laukar, skornir gróft
1 hvítlauksgeiri, kraminn
2 tsk tómatpúrra, leyst upp í 4 msk af vatni
1 ¼ bolli Guinness
2 bollar gulrætur, skornar gróft
1 timjangrein
1 söxuð steinselja til skreytingar
Hreinsið kjötið og skerið í hentuga bita. Veltið kjötinu upp úr 1 msk. af olíu.
Blandið hveiti, salti, pipar og cayenne-pipar í lítilli skál. Hitið restina af
olíu á pönnu yfir háum hita. Brúnið kjötið, lækkið hitann og bætið lauk,
hvítlauk og tómatablöndunni við. Setjið lok yfir og látið malla í 5 mínútur.
Færið innihaldið yfir í pott og hellið helmingnum af Guinnessbjórnum í pönnuna.
Látið suðu koma upp og skrapið kjötleifar af
pönnunni. Hellið yfir kjötið, ásamt restinni af bjórnum. Bætið gulrótum og
timjani út í, hrærið og smakkið til. Látið malla undir loki yfir lágum hita þar
til
kjötið
er meyrt, í um 2-3 tíma. Skreytið með steinselju og berið fram.
