Kindalundir með sveppa-púrtvínssósu

7-800 g kindalundir (eða lambalundir)
1 tsk timjan
nýmalaður pipar
2 msk hvítlauksolía
10-15 g þurrkaðir villisveppir
1/2 l soð (sjá hér á eftir)
100 ml púrtvín
125 ml rjómi
salt

Lundirnar snyrtar og himnur skornar burt (ekki henda þeim, sjá hér á eftir).
Skornar í tvennt og raðað í eldfast fat eða á bakka. Kryddaðar á báðum
hliðum með timjani og pipar og olíunni ýrt yfir. Látnar standa í a.m.k. 1
klst. Á meðan eru sveppirnir settir í skál. Soðið hitað að suðu og hellt
yfir. Látið standa í um hálftíma en síðan sett í pott og látið sjóða niður
þar til aðeins um 200 ml eru eftir. Stór panna hituð vel (ef hún er ekki
húðuð gæti þurft að bæta við dálítilli olíu) og síðan er lundunum raðað á
hana, þær saltaðar og steiktar við háan hita í 1-2 mínútur á hvorri hlið,
eða þar til þær hafa tekið nokkuð góðan lit. Púrtvíninu hellt á pönnuna og
látið sjóða í 1 mínútu. Sveppavatninu (ásamt sveppunum) og rjómanum bætt út
í og látið malla í 2-3 mínútur, eða þar til lundirnar eru hæfilega steiktar.
Sósan smökkuð til. Lundirnar má bera fram í sósunni eða taka þær upp og
setja á fat en bera sósuna fram sér. Ég bar þær fram á eikarlaufssalati og
skreytti með rifsberjum.