Kartöflu músaka og tómatsalat
Kjötsósa:
350 g hakk
2 laukar
1 paprika, rauð
1 paprika, græn
3 hvítlauksrif
1 dós hakkaðir tómatar
3 dl vatn
1 dl mjólk
2 nautakraftsteningar
salt
pipar
oregano
paprikuduft
chiliduft
olía
Jafningur:
2 dl vatn
3 og 1/2 msk hveiti
50 g smjörlíki eða 2 msk olía
4 dl mjólk
múskat
salt og pipar
1 kg kartöflur, soðnar og skornar í þunnar sneiðar
Tómatsalat:
4 tómatar
1/2 rauðlaukur
olía
salt og pipar
Aðferð:
Kjötsósa:
Steikið kjötið í olíunni. Saxið grænmetið. Bætið lauknum við á pönnuna og
steikið í nokkrar mínútur til viðbótar, bætið við hvítlauk, dósatómötum, vatni,
mjólk, nautakrafti og kryddi. Sjóðið í 15 mínútur. Smakkið til og bragðbætið með
salti, pipar, chili- og paprikudufti.
Jafningur (hvít sósa):
Hitið smjörlíkið (eða olíuna) , bakið upp með hveiti, mjólk og vatni. Kryddið
með salti, pipar og múskati.
Tómatsalat:
Skerið tómatana og laukinn í þunnar sneiðar og blandið saman. Hrærið saman olíu,
ediki, salti og pipar og dreypið yfir. (gott að krydda með steinselju eða
oregano)
Smyrjið eldfast mót (3 lítra) raðið helmingi kartöflusneiðanna í botninn, hellið kjötsósunni yfir, raðið restinni af kartöflusneiðunum þar ofna á og hellið hvítu sósunni yfir. Eldið í miðjum ofni við 35-40 mínútur við 180-200 °C