Kalkúnn fylltur með fíkjum, döðlum, hnetum og gorgonzolaosti

Fylling:
8 stk ferskar fíkjur
9 msk pecanhnetur
8 stk döðlur, steinlausar
3 box kastaníusveppir
8 stk hvítlauksgeirar
8 stk skarlottlaukar
2 msk smjör
3 msk rauðvínsedik
1 búnt steinselja
60 g gorgonzolaostur
1/2 tsk samlokubrauð
3 dl rjómi
4 stk egg

Skerið fíkjur, döðlur og kastaníusveppi í grófa bita. Afhýðið hvítlauk og skarlottulauka og skerið í smátt.
Hitið pönnu og mykið lauk og hvítlauk í smjöri. Bætið fíkjum, döðlum og sveppum á pönnuna og eldið saman. Hellið rauðvínsediki út á og sjóðið niður.
Saxiið steinselju og setjið út á. Takið pönnuna af hitanum og hellið innihaldinu í skál. Bætið gorgonzolaosti saman við á meðan blandan er heit. Skerið skorpuna af brauðinu, brauðið í teninga og blandið saman við fyllinguna. Hrærið eggjum og rjóma saman og blandið með höndunum. Fyllið kalkúnann.

Kalkúnn:
1 stk stór kalkúnn
kalkúnakrydd
sjávarsalt
2 tsk hvítur pipar
500 g smjör
2 tsk nýjar borðtuskur
sláturgarn og nál

Bræðið smjörið í potti og sjóðið tuskurnar í því í 2 mín.
Kryddið kalkúnann með kalkúnakryddi, sjávarsalti og hvítum pipar eftir smekk. Leggið tuskurnar yfir kalkúnann þannig að þær hylji hann. Setjið kalkúnann á ofngrind með bakka undir og inn í 125°C heitan ofn.
Eldið 6-8 kg kalkúna í 45-50 mín fyrir hvert kíló en 3-5 kg í 60 mín fyrir hvert kíló.
Takið tuskurnar af kalkúnanum og hækkið ofnhitann í 250°C síðustu 30 mín. Þannig að falleg skorpa myndist. Ausið safanum sem lekur af kalkúnanum yfir hann á um 30 mín fresti á meðan á steikingu stendur. Uppskrifin miðast við 8-10 manns.