Kalkúnabringur með sinnepsgljáa
Sinnepsgljái
2 msk acacia hunang
4 msk fersk ítölsk steinselja
4 msk grófkorna sinnep
Blandið hunangi, steinselju og sinnepi saman í skál.
Kalkúnabringur
800 g kalkúnabringur
200 g smjör
1/2 búnt salvía
salt
Saxið salvíu gróft. Brúnið kalkúnabringur á heitri pönnu og saltið. Blandið
salvíunni saman við smjörið og setjið undir skinnið á bringunum eða gerið lítil
göt í kjötið með hníf og stingið köldu smjörinu rétt undir yfirborðið. Setjið
bringurnar í eldfast mót með loki og inn í 110°C heitan ofn og eldið þar til
kjarnhitinn mælist 65°C. Hellið sinnepsgljáanum yfir bringurnar þegar kjarnhiti
er um 55°C. Látið standa í 12 mín. fyrir skurð.