Kalkúnabringa með avókadósósu
600 g kalkúnabringa
salt og pipar eftir smekk
1 msk. smjör
1 msk. ólífuolía
safi úr einni sítrónu
1 avókadó ávöxtur
1 græn paprika, söxuð
3-4 dropar Tabasco
1 dós sýrður rjómi
Skerið bringuna í strimla og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Bræðið smjörið á pönnu og bætið olíunni saman við. Steikið bitana í 5-7 mínútur og kreistið safann úr hálfri sítrónu yfir. Flysjið avókadóinn og maukið í matvinnsluvél. Bætið paprikunni út í ásamt því, sem eftir er af sítrónusafanum. Bragðbætið með Tabasco og bætið sýrða rjómanum út í. Berið sósuna fram með heitum kalkúnastrimlunum og hrísgrjónum.