Jólakreppulambið

1 lambabógur með beini (velja stóran helst 1200 til 1300 grömm)

Fylling
1 msk timian
2 hvítlauksrif
1 laukur
4 gulrætur
1/2 blaðlaukur (græni parturinn)
2 msk ólívuolía
200 g bláber
10 einiber
1 msk balsamikedik (má sleppa)

Steikin
Bógurinn er úrbeinaður, þ.e. tvö aftari beinin tekin úr en bein að framan skilið eftir.
75 g af bláberjum (mega vera frosin)
10 einiberjum, söxuðum
1/2 lauk
fínsöxuðum hvítlauk
ein tsk pipar
öllu þessu blandað í skál.
Klippið niður 10 bönd af sláturgarni 15-20 cm langt hvert.
Berið 1 - 1 1/2 msk af ólívuolíu á bóginn að innanverðu. Setjið svo tvær langskornar gulrætur langsum inn í bóginn.
Næst er bláberjablandan sett inn í bóginn og honum lokað með böndunum.
Þá er bógurinn tilbúinn í ofninn. Hann þarf að steikja við 170 g hita í um 50 mín eða þar til kjarnhiti er 60 gráður.

Sósan
Beinin úr bóginum eru brúnuð í ofnskúffu ásamt 1/2 lauk, 2 gulrótum og blaðlauknum. Brúnað þar til beinin eru orðin vel brún um það bil 20 mínútur. Gott að setja þetta inn um leið og steikina. Beinin ásamt grænmetinu eru sett í pott og vatni hellt yfir. Einni matskeið af lambakrafti bætt út í eða einum teningi. Þetta er soðið niður þar til sósan er um það bil 3 desílítrar. Þá er 50 grömmum af bláberjum bætt út í og látið sjóða í þrjár mínútur. Sósan er þykkt með maizenamjöli.