Ítalskar kjötbollur með Parmesan
Ítalskar kjötbollur eru frægar fyrir bragðgæði. Ein af ástæðunum er að Parmesan
osti er gjarnan blandað saman við kjötdeigið. Ef þið viljið er hægt að nota
svínahakk í staðinn fyrir nautahakkið.

Hráefni:
750 g nautahakk
4 msk Extra virgin ólífuolía
60 g Parmesan, rifinn
20 g söxuð, fersk steinselja
1 tsk ferskt múskat
salt og pipar eftir smekk
Aðferð
Setjið hakkið í stóra skál og kryddið með salti og pipar. Bætið þá múskati,
Parmesanosti og steinselju saman við og hnoðið vel saman með höndunum. Bleytið
hendurnar í köldu vatni og búið til litlar kjötbollur. Hitið 2 msk af
ólívuolíunni á pönnu og steikið helminginn af bollunum í u.þ.b. 5 mín. Veltið
pönnunni af og til svo bollurnar nái að steikjast á öllum hliðum. Takið
bollurnar varlega af pönnunni og leggið á disk. Setjið þá afganginn af
ólífuolíunni á pönnuna og gerið eins við hinn helminginn af bollunum. Þræðið
bollurnar upp á trépinna og berið þær fram heitar eða volgar.