Ítalskar folaldalundir með pasta
7-800 g folaldalund
nýmalaður pipar
salt
2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður fremur smátt
2 litlir kúrbítar, skornir í 1 cm þykkar sneiðar
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
250 ml þurrt hvítvín
5-6 vel þroskaðir tómatar, saxaðir smátt (eða 1 dós niðursoðnir)
1 tsk ítölsk eða próvensölsk kryddjurtablanda
400 g tagliatelle
1 tsk sykur, eða eftir smekk
nokkur basilíkublöð (má sleppa)
Folaldalundin skorin 2-3 bita og krydduð nokkuð
vel með pipar og salti.
Olían hituð á stórri, þykkbotna pönnu og kjötið steikt við háan hita á 3
hliðum hver biti, í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Laukurinn, hvítlaukurinn og
kúrbíturinn settur á pönnuna þegar búið er að snúa því í síðasta skiptið.***
Eftir 1-2 mínútur er hvítvíninu hellt yfir og látið sjóða. Tómötunum og
kryddjurtunum bætt á pönnuna, hitað að suðu og hitinn lækkaður. Látið sjóða
við meðalhita í 8-12 mínútur, eftir því hvað kjötið á að vera rautt í miðju;
snúið einu sinni eða svo. Ef sósan verður mjög þykk má bæta meira víni,
tómatsafa eða vatni út í, en hún á að vera þykk. Á meðan er pastað soðið í
saltvatni þar til það er rétt tæplega meyrt en síðan hellt í sigti, látið
renna vel af því og hvolft í skál. Þegar kjötið er hæfilega steikt er það
tekið af pönnunni og sett á skurðarbretti. Sósan smökkuð til og bragðbætt
með sykri, pipar og salti eftir smekk. Hellt á fat (kannski ekki heppilegt
ef hún er mjög þunn). Kjötið skorið á ská í fremur þunnar sneiðar og raðað
ofan á. E.t.v. skreytt með basilíkublöðum og borið fram með pastanu.
*** Á þessu stigi málsins bæta sannir brennuvargar eins og ég 2 msk af
brandíi á pönnuna og kveikja í. En það er ekki nauðsynlegt.