Ítalskar kjötbollur
500 gr nautahakk
1 brauð bleytt í mjólk
1 egg
2 hvítlauksrif
2 tsk oregano
2 tsk fersk steinselja
Hnefi af söxuðum ólífum
1 tsk salt
2 tsk svartur pipar
Parmesan ostur
Sítrónubörkur af heilli sítrónu og safi
Aðferð:
Blandið öllu saman, þannig að auðvelt sé að hnoða litlar bollur, veltið upp úr
hveiti og steikið í smá olíu í 2-3 skömmtum.
Sósa:
2 dollur LaSelva tómatsósa með basil
3-4 þurrkaðir litlir chilli-bitar
1 laukur gróft skorinn
2 hvítlauksrif
Tómatpúré
Sítrónusafi
Hnefafylli af rifnu fersku basil.
Aðferð:
Laukur, hvítlaukur og chili steikt þangað til það glansar og sósunni þá hellt út
í. Látið malla aðeins. Smakkað til með pipar, salti og tómatpúré. Að lokum er
basilinu hent út á. Borðað með spaghetti eða einhverju
öðru pasta.