Írakskur pottréttur með okra (Bamiah hamudh)
1 kg beinlaust kindakjöt eða 1,5 kg
lambaskankar
1 msk olía
1 laukur, saxaður
1/4 tsk nýmalaður pipar
1/4 tsk túrmerik eða milt karríduft
700 ml vatn, og meira eftir þörfum
2 msk tómatþykkni (paste)
2 stórir tómatar, saxaðir smátt
250 g okra
1 sítróna
1-2 msk sykur
salt
söxuð fersk minta eða steinselja (má sleppa)
Kjötið skorið í stóra bita, 5-6 cm á kant.
Olían hituð í víðum potti eða á
pönnu með háum börmum og laukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur
við meðalhita. Þá er honum ýtt út að börmunum, kjötið sett á pönnuna ásamt
pipar og túrmeriki, og brúnað vel á öllum hliðum. Vatni hellt yfir, lok sett
yfir og látið malla í um 45 mínútur. Þá er tómatþykkni og tómötum bætt út í
ásamt dálitlu vatni ef uppgufun er mikil. Látið malla í 45 mínútur í viðbót,
eða þar til kjötið er vel meyrt. Okrað sett út í ásamt meira vatni ef þarf.
Safinn úr sítrónunni kreistur yfir og smakkað til með sykri og salti. Látið
malla í 15-20 mínútur. E.t.v. skreytt með ferskum kryddjurtum og síðan borið
fram með soðnum hrísgrjónum (sem gott er að strá léttristuðum furuhnetum eða
möndlum yfir).