Innbakaður lambavöðvi
Uppskrift Halldórs kokks Halldórssonar.
2 x 400 g fitulaus lambahryggvöðvi
Kartöfludeig:
500 g flysjaðar bökunarkartöflur
2 egg
260 g hveiti
salt, pipar
1 meðalstór sæt kartafla (má sleppa)
Kartöflurnar eru soðnar í söltu vatni þar til þær eru meyrar. Síðan marðar í
gegnum sigti og kældar niður. Egg og hveiti hrært saman og loks
kartöflurnar. Varist að hræra deigið of mikið. Deiginu er skipt í tvennt og
það flatt út í ca 0,5-1 cm þykkt á smjörpappír. Kjötið er brúnað, saltað og
piprað eftir smekk, sett á deigið og rúllað upp. Sæta kartaflan er skorin
örþunnt niður og raðað utan um kartöfludeigið (má sleppa). Klætt með
bökunarpappír og bakað í 180° heitum ofni í 30-40 mínútur eða þar til
kjarnhiti nær 55°.
Meðlæti laukur og fennel
2 laukar
2 rauðlaukar
1 blaðlaukur
1 fennel
5 msk. balsamik-edik
ólífuolía
salt og pipar
Laukarnir eru afhýddir, skolaðir og sneiddir í þunnar sneiðar ásamt fennel.
Steikt á pönnu við vægan hita þar til farið er að glærast, þá er hitinn
aukinn og balsamik-edikinu bætt við og soðið niður. Saltað og piprað eftir
smekk.
Sósa
1 dós Hunt‘s roasted garlic-tómatar.
3 dl lambasoð eða nautasoð (teningur + vatn)
Soðið saman og þykkt með Maizena-sósujafnara.
Gott er að móta afgangs kartöfludeig í litlar kúlur og djúpsteikja eða
steikja á pönnu sem meðlæti.