Innbakaður héri

2 stk. hérafillet hreinsuð og snyrt

100 g kalkúnabringa

80 g Shitake-sveppir skornir í sneiðar

60 g Emmentaler-ostur skorinn í mjög litla kubba

100 ml rjómi              

30 g Shallotu-laukur saxaður smátt

80 g spínat

koníak bara smá slettu

Salt og pipar

2 greinar timjan

50 g smjör

Hvítt brauðtertubrauð

Hérakjötið er sina- og fitu hreinsað, kryddað með salti og pipar og lagt saman. Síðan er búið til kalkúnafars á eftirfarandi hátt: Sveppir, laukur og spínat steikt í smjörinu og kælt. Kalkúnabringan sett í mixer og maukuð. Öllu blandað út í mixerinn og kryddað. Rjómanum er að síðast bætt við. Farsinu er smurt á brautertubrauðið 0,5 cm þykku. Héranum er síðan rúllað inn í fars og brauð, pakkað inn í plastfilmu og sett í kæli. Plastið tekið af og rúllan steikt í smjöri þar til hún er vel brúnuð. Bökuð í 20 mínútur í ofni við 110 gráður. Skorin í fjóra bita.