Innbakað lambafille með villisveppafyllingu

Lamb:

2 meðal stór lambafille

Salt og pipar

Olía til steikingar

150 g smjördeig

1 eggjarauða til penslunar

Sveppafylling:

100 g villisveppir

50 g furuhnetur

1 stk skalottlaukur

½ dl madeira

½ dl rjómi

Salt og pipar

Brauðraspur (ekki paxo)

Sveppir, laukur og hnetur er saxað mjög fínt. (hnetur ekki of fínt). Steikt á pönnu og madeira hellt saman við og soðið niður. Rjómanum bætt saman við og raspinum soðið þar til hæfileg þykkt er komin. Lambafilleið er snyrt og brúnað á pönnu og kryddað. Kælið kjötið. Smjördeigið er gatað og kjötið sett ofan á það, fyllingunni smurt ofan á kjötið og smjördeiginu lokað með samskeytin undir kjötinu, penslið deigið með eggjarauðu. Bakað við 180°C og tekið út áður en kjötið er of steikt. Þetta tekur 15-25 mín eftir smekk.