Indverskur lambakjötsréttur

5-600 g lambakjöt
4 msk jógúrt
4 hvítlauksgeirar
1 tsk túrmerik eða milt karríduft
4 msk olía
4-6 heil chilialdin, þurrkuð
10 heilar kardimommur
4 negulnaglar
1 msk kóríanderfræ, heil
1 tsk kanell
3 laukar
1 msk ferskur engifer, rifinn
vatn eftir þörfum
4 tómatar, grófsaxaðir
1 tsk salt, eða eftir smekk

Kjötið skorið í gúllasbita. Jógúrtin sett í skál, 2 hvítlauksgeirar
pressaðir yfir og túrmerik hrært saman við. Kjötið sett út í og látið
standa í nokkra klukkutíma í kæli; hrært öðru hverju. Síðan er 1 msk af olíu
hituð á pönnu. Chilialdinin fræhreinsuð ef rétturinn á að vera sterkur en fræin
látin vera ef hann á að vera vel sterkur og sett á pönnuna ásamt
kardimommum, negul og kóríander. Ristað við meðalhita þar til kryddið er
farið að ilma vel en þá er það tekið af pönnunni, látið kólna ögn og síðan
steytt eða malað og kanelnum blandað saman við. Laukarnir skornir í helminga
og síðan í þunnar sneiðar. Afgangurinn af olíunni hitaður á pönnu og
laukurinn látinn krauma í henni við fremur vægan hita þar til hann er glær.
Hvítlauk og engifer bætt á pönnuna og síðan kryddinu, hálfum bolla af
vatni hellt yfir og soðið þar til vökvinn er nærri gufaður upp. Þá er hitinn
hækkaður nokkuð, kjötið sett á pönnuna, steikt í nokkrar mínútur og hrært
oft á meðan. Tómötum og salti bætt út í og eftir nokkrar mínútur er hálfum
bolla af vatni í viðbót hellt yfir, lok sett á pönnuna og látið malla við
vægan hita í 35-45 mínútur, eða þar til kjötið er orðið vel meyrt. Hrært
öðru hverju og svolitlu vatni bætt við ef þarf en sósan á alls ekki að vera þunn.