Indverskur lambakjötsréttur frá Austur
Indíafélaginu
1200 g lambafilet
400 ml hrein jógúrt
2 meðalstórir hvítir laukar, fínt skornir
20 stykki kasjúhnetur
2 msk. engifermauk
2 msk. hvítlauksmauk
2 msk. grænt chili-mauk
2 stórar rauðar paprikur
4 msk. olía
2 msk. sítrónusafi
salt eftir smekk
1 1/2 msk. garam masala krydd
1 msk. cumin-krydd
Skerið kjötið í litla tenginga. Þerrið með eldhúspappír. Hrærið saman olíu,
salti, engifer-, hvítlauks og chili-maukinu og sítrónusafanum. Snöggsteikið
laukinn. Hitið kasjúhneturnar á pönnu og blandið örlitlu vatni saman við þannig
að þær mýkist.
Skerið paprikurnar og grillið á pönnu. Hrærið saman jógúrt, lauk, hnetum og
papriku. Því næst er jógúrtblandan hrærð létt
saman við olíumaukið. Setjið lambakjötið út í og látið það liggja í leginum í
tvær til þrjár klukkustundir. Steikið á pönnu eða grillið í 10-15 mínútur.
Berið fram með nanbrauði, hrísgrjónum og hreinu jógúrti
[Prufaði þennan um daginn, hann er mjög góður en mun gera hann næst með öðru kjöti t.d. kjúklingalærum.]