Indónesískur réttur
1 kg hrossakjöt (folaldakjöt eða hvaða kjöt sem til er)
1 laukur
1 hvítlauksrif
matarolía og smjör til steikingar
1 dós tómatsósa (helst Cicero)
1 og 1/2 dl vatn
2 msk púðusykur eða hrásykur
2 tsk karrý (Raja medium indverskt)
1 tsk salt
1 teningur (grænmetis, organic)
2 epli afhýdd og í bitum
1 appelsína í þunnum sneiðum með berki
1 og 1/2 dl rúsínur
Laukurinn og kjötið er brúnað saman og sett í pott og allt hitt á eftir. Soðið í 45 mínútur. Gott að pipra aðeins og salta. Þetta er góður haustréttur og getur ekki klikkað. Fallegt er að skreyta með appelsínusneiðum og svo passa villihrísgrjón og brauð afar vel með.