Hvítlaukskótelettur (Chuletas de cordero al ajo cabanil)
800 g kartöflur
150 ml ólífuolía
1 heill hvítlaukur
3 msk hvítvínsedik
4 msk vatn
1 kg lambakótelettur
1 tsk sykur
nýmalaður pipar
salt
Kartöflurnar skornar í sneiðar; engin þörf á að
afhýða þær ef þær eru nýlega
uppteknar. Helmingurinn af olíunni hitaður á stórri, þykkbotna pönnu og
kartöflurnar látnar krauma í henni í nokkrar mínútur við fremur vægan hita.
Hvítlauksgeirarnir afhýddir, skornir í bita, settir í mortél og steyttir í
mauk. Ediki og vatni hrært saman við. Afgangurinn af olíunni hitaður vel á
annarri pönnu. Kóteletturnar settar á hana og steiktar við háan hita þar til
þær hafa tekið góðan lit á báðum hliðum. Þá er hitinn lækkaður, helmingnum
af hvítlaukssósunni hellt yfir þær og hinum helmingnum yfir kartöflurnar,
sykri, pipar og salti stráð yfir báðar pönnurnar, og látið krauma áfram við
fremur vægan hita í 8-10 mínútur, eða þar til kóteletturnar eru steiktar í
gegn og kartöflurnar vel meyrar. Þá eru kartöflurnar teknar upp með
gataspaða og raðað á fat, kótelettunum raðað ofan á og afganginum af
hvítlauksolíunni hellt af báðum pönnunum og hún borin fram með.