Hvalsteik með piparsósu
Aðalréttur fyrir 4
800 g hrefnukjöt, kjötið þarf að þiðna áður en það er steikt
Grill- og steikarolía
Sítrónupipar
Skerið hvalkjötið í eins sentímetra þykkar sneiðar. Dýfið sneiðunum í
steikarolíu og setjið síðan á þurra og snarpheita pönnuna. Steikið í 37 sekúndur
á fyrri hlið og 36 sekúndur á
seinni hlið. Kryddið með sítrónupipar.
PIPARSÓSA
250 ml mjólk
250 ml rjómi
Smjörbolla eða sósuþykkir í pakka
4 steiktir sveppir, settir út í sósuna
2 tsk. kjötkraftur
2 dl sérrí
1 tsk. sítrónupipar
1 tsk. svartur pipar, malaður
