Hunangs-sinnepsmarineruð grísalund með bakaðri
sætri kartöflu og laukdressingu
fyrir fjóra
800 g grísalundir
8 msk hunang
8 msk grófkorna sinnep
salt og pipar
Snyrtið kjötið. Blandið saman hunanginu og sinnepinu og marinerið kjötið í 2
klst. Grillið kjötið í 4 mínútur á hvorri hlið, lækkið hitann og snúið kjötinu
reglulega í 12 mínútur.
Leyfið kjötinu að standa í 5 mínútur áður en það er skorið.
2 sætar kartöflur
1/4 búnt garðablóðberg
4 msk ólífuolía
1 hvítlauksrif
gróft salt og rósapipar (eftir smekki)
Skerið kartöflurnar í sneiðar. Blandið saman í skál ólífuolíunni,
garðablóðberginu, rifnum hvítlauknum, grófa saltinu og rósapiparnum. Veltið
kartöflunum upp úr leginum og skiptið þeim niður í 4 álpappír. Bakið á grillinu.
1 dós sýrður rjómi
1 rauðlaukur
2 hvítlauksrif
2 stk vorlaukur
2 stk shallottulaukur
salt og pipar
Saxið allan laukinn fínt (eða maukið í matvinnsluvél) og blandið við sýrða
rjómann. Kryddið með salti og pipar.