Hreindýrafille
Fyrir tvo

Hreindýrafille 250 g.

Til að búa til gómsætt hreindýr skal hita upp pönnu með olíu. Setja smá salt og pipar á kjötið og steikja hvora hlið í eina mínútu. Setja síðan steikina inn í ofn á 190 gráður í fjórar mínútur. Kjötið er tekið út og látið kólna í 5 mínútur. Setjið aftur í ofninn í tvær mínútur rétt áður en það er borið fram. (Kjötið á að vera 45 gráðu heitt í miðjunni). Þessi steiking gerir kjötið meyrt og girnilegt, um medium rare.