Hreindýr með tímian-kartöflumús og súkkulaðisósu

800 g hreindýralund
olía og smjör til steikingar
Þverskerið kjötið. Hitið olíu og smjör saman á pönnu og snöggsteikið við háan hita. Kjötið þarf mjög stuttan steikingartíma og skal aðeins brúnast að utan.
TÍMÍAN-KARTÖFLUMÚS:
1 kg bökunarkartöflur
50 g smjör
mjólk eftir þörfum
salt
sykur
2 msk. steinselja, fínt
söxuð
lauf af 6-8 greinum af fersku tímíani Sjóðið kartöflurnar í vatni þar til þær verða meyrar eða bakið þær í ofni við 200°C í u.þ.b. klukkutíma. Skafið innan úr hýðinu með skeið og stappið gróft með gaffli. Stappið smjörið saman við. Þynnið músina með mjólk eftir smekk og bragðbætið með salti, sykri, steinselju og tímíani.

SÚKKULAÐISÓSA:

25 g ósaltað smjör
1 rauðlaukur, fínt saxaður
1 lítið chili-aldin, fræhreinsað
og fínt saxað
4-6 sveppir, meðalstórir,
saxaðir
150 ml rauðvín
100 ml nauta- eða villibráðarsoð
2 tímíangreinar
1 lárviðarlauf
salt og pipar
45 g Síríus Konsum 70%
súkkulaði
Hitið smjörið á pönnu og látið
laukinn krauma í smástund.
Bætið chili og sveppum á pönnuna og mýkið við meðalhita í u.þ.b. 3 mínútur. Hellið svo rauðvíninu og soðinu út í. Bætið tímíaninu og lárviðarlaufinu við. Látið suðuna koma upp og sjóðið niður kröftuglega þar til helmingur vökvans er eftir. Hellið sósunni gegnum sigti yfir í hreinan pott. Saltið og piprið. Skerið súkkulaðið í litla bita og bætið því út í smátt og smátt. Hrærið stöðugt í á meðan. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Haldið heitu.

SMJÖRSTEIKTIR SVEPPIR:

3 msk. smjör
250 g sveppir, skornir til
helminga
salt og pipar
Hitið smjör á pönnu og steikið
sveppina. Saltið og piprið.
Haldið þeim heitum.
Búið til beð á miðjum diskinum úr kartöflumúsinni, dreifið sveppunum umhverfis. Hellið sósunni yfir sveppina. Setjið kjötið ofan á kartöflumúsina. Saltið og piprið.