Hong kong réttur
6 stórir sveppir
1 púrrulaukur
1/2 dós BLUE DRAGO Waer Chestnuts (225 gr)
1 msk olía
300 gr svínakjöt, fínt skorið
pipar
salt
2 tsk hvítlauksgeirar, pressaðir
1 msk sérrý (eða hvítvín)
2 tsk BLUE DRAGON sojasosa
2 tsk BLUE DRAGON ostrusósa
2 tsk BLUE DRAGON sesamolía
1 dós BLUE DRAGON ho sin sósa (250 ml)
slatblöð til skreytingar
Fínsaxið sveppina , púrrulaukinn,
vatnshneturnar og bambussprotana.
Hitið olíuna í wok pönnu og steikið kjötið þar til það er orðið brúnleitt.
Blandið öllu grænmetinu út í , vatnshnetunum og bambus sprotunum.
Hrærið í og steikið u.þ.b. 1 mín. Kryddið með salti og pipar. Hrærið saman
sérrý, sojasósunni, ostrusósunni og sesamolíunni, hellið svo blöndunni út í wok
pönnuna. Hrærið hratt í og takið hitann af. Borið fram með kjötblöndunni á
salatblaði ásamt ho sin sósu.