Heimagerður beikonborgari
Að búa til sinn eigin hamborgara er mun auðveldara en margir halda. Með því að
búa hamborgarann til sjálft getu r fólk ráðið hvað fer í hann og notað hráefni
eftir eigin smekk.
Uppskriftin er fyrir fjóra
500 g nautahakk
1 tsk. Salt
½ tsk. Pipar
2 tsk. Worcestershiresósa
8 beikonsneiðar
8 ferskir sveppir
2 msk. Olía til steikingar
4 hamborgarabrauð
4 salatblöð
1 tómatur
½ laukur
4
msk.
chilisósa
1. Kryddið hakkið með salti, pipar og worcestershiresósu og hrærið allt vel
saman.
2. Mótið fjóra hamborgara úr deiginu og steikið þá á t.d. grillpönnu við góðan
hita.
3. Skerið sveppina í sneiðar og steikið þá á annarri pönnu þar til þeir verða
gullinbrúnir.
4. Steikið beikonið eftir smekk.
5. Hitið brauðið.
6. Leggið salatblað, tómat og lauksneiðar, sveppi og beikon á brauðið og setjið
síðan hamborgarann ofan á. Setjið chilisósu efst.
7. Berið fram með frönskum kartöflum eða kartöflusalati eftirsmekk.