Heilsteikt gæs með ávaxtafyllingu og bláberjasósu

1 gæs, reytt og sviðin

 

Ávaxtafylling
2 plómur skornar litla bita
1 epli skorið í bita
nokkrar sveskjur
þurrkaðar apríkósur
salt
pipar
skvetta af púrtvíni

Allt sett í skál, kryddað og púrtvíni hellt yfir. Geymist í kæli yfir nótt. Hreinsið gæs vel að innan og skellið fyllingu í, lokið opi með seglgarni. Setjið í ofn á 180-200 gráður í 15-20 mínútur þar til gæs er gullinbrún, lækkið í 140 gráður og steikið í 2 tíma. Ausið yfir á 30 mínútna fresti með safa og fitu sem lekur af henni.

 

Bláberjasósa
1 skarlottlaukur smátt saxaður
1 msk smjör
lárviðarlauf
ferskt rósmarín
ferskt blóðberg
1 dl rauðvín
1 dl púrtvín
1 dl bláberjasulta
3 dl villibráðasoð
sósujafnari
fersk bláber
50 g kalt smjör

Mýkið lauk í smjöri með kryddi, bætið víni út í ásamt sultu og sjóðið niður um helming. Bætið soði við og þykkið. Bætið köldu smjöri við og hrærið varlega. Látið ekki sjóða. Setjið fersk bláber í sósuskál og hellið sósu yfir.