Hamborgarhryggur með hunangsgljáa
fyrir 6

 

1 stk. hamborgarhryggur
2 l vatn
2 dl rauðvín
1 stk. laukur
5 stk. negulnaglar

 

Hunangsgljái

2 msk. sætt sinnep
2 msk. hunang
2 msk. púðursykur
2 msk. rauðvín
1½ dl möndluflögur

Setjið kjötið í pott með köldu vatni. Látið suðuna koma upp og skiptið um vatn, en það kemur í veg fyrir að kjötið verði of salt. Sjóðið hamborgarhrygginn í vatni ásamt víni, lauk og negulnöglum í 30-40 mínútur. Takið hann úr soðinu og látið kólna. Setjið hrygginn í ofnskúffu og snúið beininu niður. Hrærið saman sinnepi, hunangi, púðursykri og rauðvíni og smyrjið því vandlega á hrygginn. Dreifið möndluflögum yfir og brúnið í ofni við 180° C í 15-20 mínútur. Berið fram með rauðvínssósu og brúnuðum kartöflum.